Síðdegisútvarpið ræddi í gær við húseiganda á Kársnesi sem lenti í því að brotist var inn hjá honum þegar fjölskyldan skellti sér út úr bænum. Hann sagði okkur frá því að greinilega hafi verið fagmenn verið á ferð miðað við verksummerkin. Öryggiskerfi hafi verið í húsinu sem þeir náðu að sniðganga með því að fara inn um svefnherbergisgluggan og halda sig þar. Þar voru verðmætin geymd og engir hreyfiskynjarar þar inni. Og nú er tíðin framundan þar sem landinn skellir sér í sumarfrí. Hvað þarf að hafa í huga þegar maður gengur frá híbýlum sínum? Sverrir Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri öryggislausna hjá Öryggismiðstöðvinni, fór yfir þessi mál með okkur.
Faxaflóhafnir ætla að bjóða þjóðinni í heimsókn til sín á opnunarhátíð Varar, nýrrar fjölnota farþegamiðstöðvar við Viðeyjarsund, á sunnudaginn. Þá er mikið er um að vera á þeim bænum t.d. nýr viðlegukantur í Sundahöfn. Og svo virðist einhver samdráttur í komum skemmtiferðaskipa til landsins. Til okkar kom Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri Faxaflóahafna.
Fagmaðurinn er nafn á nýju smáforriti, appi, sem leiðir saman fagfólk og almenning sem þarf á fagmanni að halda fyrir hin ýmsu verk heima fyrir. Öll vitum við hversu erfitt getur verið að finna fagmann í litlu verkin heima. Davíð Jónsson, hönnuður smáforritsins og eigandi, sagði okkur betur frá.
Bókmenntahátíð Flateyrar fer fram fer í annað sinn næstu helgi á Flateyri við Önundarfjörð. Þar munu rithöfundar og bókmenntavinir mætast og deila sögum, hugsunum og ástríðu sinni fyrir bókmenntum og verða þar allar umræður bæði á íslensku og ensku, sem gerir þessa bókmenntahátíð að sérstæðum viðburði á íslenska menningarkortinu. Rithöfundurinn Helen Cova heldur utan um Bókmenntahátíð Flateyrar, er fædd í Venesúela en keypti hús á Flateyri fyrir fáeinum árum og rekur þaðan bókaforlagið Karíba. Hún sagði okkur frá hátíðinni.
Mögulegt hrun veltihringrásar Atlantshafsins vegna hnattrænnar hlýnunar af mannavöldum verður rætt á opnum fundi umhverfis og samgöngunefndar alþingis á morgun fimmtudag. Þar ætlar fundarfólk að fjalla um um viðbrögð og aðgerðir ríkisstjórnar vegna afgerandi vísbendinga um veikingu og mögulegs hruns og verður Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra gestur fundarins. Halldór Björnsson fagstjóri hjá Veðurstofunni sagði okkur frá þessu mögulega eða svokkallaða hruni veltihringrásarinnar.
Leikhópurinn Handbendi setur upp Brúðusöngleikinn Rót í Tjarnabíói um næstu helgi þar sem tilgangurinn er að vekja upp spurningar hjá ungum leikhúsgestum um sjálfsmynd, menningarlegar rætur og samfélagslegar breytingar. Aðalpersóna sögunnar er drengurinn Óli – brúða í fullri stærð. Þau Greta Clough, leikstjóri og höfundur og Sigurður Líndal Þórisson, þýðandi, komu og sögðu okkur betur frá þessu áhugaverða leikhúsi.