Síðdegisútvarpið

Golfstraumurinn, brúður, bókmenntahátíð, fagfólk og Faxaflóahafnir

Síðdegisútvarpið ræddi í gær við húseiganda á Kársnesi sem lenti í því brotist var inn hjá honum þegar fjölskyldan skellti sér út úr bænum. Hann sagði okkur frá því greinilega hafi verið fagmenn verið á ferð miðað við verksummerkin. Öryggiskerfi hafi verið í húsinu sem þeir náðu sniðganga með því fara inn um svefnherbergisgluggan og halda sig þar. Þar voru verðmætin geymd og engir hreyfiskynjarar þar inni. Og er tíðin framundan þar sem landinn skellir sér í sumarfrí. Hvað þarf hafa í huga þegar maður gengur frá híbýlum sínum? Sverrir Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri öryggislausna hjá Öryggismiðstöðvinni, fór yfir þessi mál með okkur.

Faxaflóhafnir ætla bjóða þjóðinni í heimsókn til sín á opnunarhátíð Varar, nýrrar fjölnota farþegamiðstöðvar við Viðeyjarsund, á sunnudaginn. Þá er mikið er um vera á þeim bænum t.d. nýr viðlegukantur í Sundahöfn. Og svo virðist einhver samdráttur í komum skemmtiferðaskipa til landsins. Til okkar kom Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri Faxaflóahafna.

Fagmaðurinn er nafn á nýju smáforriti, appi, sem leiðir saman fagfólk og almenning sem þarf á fagmanni halda fyrir hin ýmsu verk heima fyrir. Öll vitum við hversu erfitt getur verið finna fagmann í litlu verkin heima. Davíð Jónsson, hönnuður smáforritsins og eigandi, sagði okkur betur frá.

Bókmenntahátíð Flateyrar fer fram fer í annað sinn næstu helgi á Flateyri við Önundarfjörð. Þar munu rithöfundar og bókmenntavinir mætast og deila sögum, hugsunum og ástríðu sinni fyrir bókmenntum og verða þar allar umræður bæði á íslensku og ensku, sem gerir þessa bókmenntahátíð sérstæðum viðburði á íslenska menningarkortinu. Rithöfundurinn Helen Cova heldur utan um Bókmenntahátíð Flateyrar, er fædd í Venesúela en keypti hús á Flateyri fyrir fáeinum árum og rekur þaðan bókaforlagið Karíba. Hún sagði okkur frá hátíðinni.

Mögulegt hrun veltihringrásar Atlantshafsins vegna hnattrænnar hlýnunar af mannavöldum verður rætt á opnum fundi umhverfis og samgöngunefndar alþingis á morgun fimmtudag. Þar ætlar fundarfólk fjalla um um viðbrögð og aðgerðir ríkisstjórnar vegna afgerandi vísbendinga um veikingu og mögulegs hruns og verður Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra gestur fundarins. Halldór Björnsson fagstjóri hjá Veðurstofunni sagði okkur frá þessu mögulega eða svokkallaða hruni veltihringrásarinnar.

Leikhópurinn Handbendi setur upp Brúðusöngleikinn Rót í Tjarnabíói um næstu helgi þar sem tilgangurinn er vekja upp spurningar hjá ungum leikhúsgestum um sjálfsmynd, menningarlegar rætur og samfélagslegar breytingar. Aðalpersóna sögunnar er drengurinn Óli brúða í fullri stærð. Þau Greta Clough, leikstjóri og höfundur og Sigurður Líndal Þórisson, þýðandi, komu og sögðu okkur betur frá þessu áhugaverða leikhúsi.

Birt

27. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,