
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á föstudaginn verður Mannauðsdagurinn 2026 haldinn í Hörpu og þar sem rúmlega þúsund ráðstefnugestir munu koma saman. Í síbreytilegum heimi fyrirtækjareksturs og vinnustaða gegnir fólk sem starfar við mannauðsmál mikilvægu hlutverki og þeirra aðkoma að mótun menningar vinnustaðarins og því að hlúa að mannauðnum. Adriana K. Pétursdóttir formaður Mannauðs og Unnur Ýr Konráðsdóttir, varaformaður Mannauðs, sem standa að Mannauðsdeginum komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá.
„Bókabíó“ fór fram á kvikmyndahátíðinni RIFF í gærkvöldi en þá var sýnd verðlaunakvikmyndin Pride & Prejudice (Hroki og hleypidómar) frá árinu 2005 sem byggð er á sígildri sögu Jane Austen. Einnig var boðið uppá spjall með þeim Kristínu Lindu Jónsdóttur, formanni Jane Austen klúbbsins á Íslandi, og Silju Aðalsteinsdóttur, rithöfundi en Silja er helsti þýðandi verka Jane Austen á Íslandi. Silja og Kristín Linda komu til okkar í dag.
Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag talaði hann við okkur um El Nino og helstu áhrifin af honum, undarlega hegðun fellibyljarins Polo og svo veðrið hér á landi næstu daga.
Tónlist í þættinum:
Byrjaðu í dag að elska / Geirfuglarnir (Rokkmúsirnar)
Litlu hlutirnir / Hildur Jónsdóttir (Hildur Jónsdóttir)
Theme From a Summer Place /Percy Faith Orchestra (Max Steiner)
Gæfa eða gjörvileiki / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.