Mannlegi þátturinn

Fuglainflúensa, Ísólfur ögrar sér og kulnun í mannlegum samskiptum

Nýlega voru staðfest smit af skæðri fuglainflúensu í villtum fuglum hér á landi. Dauðir fuglar sem smit greindust í fundust m.a. við Tjörnina í Reykjavík og við tjörn við Ögurhvarf í Kópavogi, en smit af þessari gerð höfðu þá ekki greinst hér á landi frá sumrinu 2023. Andrea Björk Hannesdóttir dýralæknir hjá Dýrheimum kom í þáttinn og fór til dæmis yfir það hvað fólk á gera finni það dauða fugla og hvað berast varast, t.d. varðandi gæludýr sem gætu komist í snertingu við smitaða fugla.

Við höfum töluvert rætt þriðja æviskeiðið í þessari viku og í dag fengum við góðan gest sem hefur einsett sér njóta þessa tímabils eins og hægt er. Hann heitir Ísólfur Gylfi Pálmason og á baki farsæla starfsævi sem kennari, stjórnmálamaður og fleira - hann neitar leggjast í kör á efri árum og leggur sig fram við ögra sér, fara upp úr hjólförunum og prófa nýja hluti. Ísólfur sagði okkur frá sundferðum, hjóla- og tjaldferðum og tónlist sem hann lumaði á og ákvað konuna sína til syngja og reynda tónlistarmenn til spila á upptökum sem hann hefur gefið út.

Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Undanfarna fimmtudaga hefur hann einbeitt sér mannlegum samskiptum á vinnustöðum og í dag talaði hann um kulnun og hvernig hún getur tengst mannlegum samskiptum.

Tónlist í þættinum í dag:

Líttu sérhvert sólarlag / Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson (Bragi Valdimar Skúlason)

Lítill fugl / Ellý Vilhjálms (Sigfús Halldórsson, texti Örn Arnarson (duln.f. Magnús Stefánsson)

Morgunljóð til Margrétar / Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir (Ísólfur Gylfi Pálmason, texti Pálmi Eyjólfsson)

Þrjú tonn af sandi / Haukar (Winfield & Blackwell, texti Þorsteinn Eggertsson)

UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

12. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,