Mannlegi þátturinn

Samfélagsáhrif skapandi greina, að vinna á fordómum og Epstein-Barr veiran

Er hægt mæla samfélagsáhrif skapandi greina? Á viðburði sem haldinn var í síðustu viku af Rannsóknarsetri skapandi greina var leitast við svara þessari spurningu. Og hvort hægt rýna í hvernig skapandi starfsemi mótar samfélagslegar breytingar og hvort þær séu mælanlegar og hvert er gildi þeirra í samtímanum? Þorbjörg Daphne Hall, prófessor í tónlistarfræðum við LHÍ, og Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknaseturs skapandi greina komu í þáttinn og sögðu okkur frá.

Hvernig vinnum við á fordómum? Það var yfirskriftin á hádegisfundi sem var í gær á vegum Geðhjálpar þar sem fjallað var um fordóma gagnvart andlegum áskorunum og niðurstöður úr nýrri rannsókn voru kynntar. Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, var með erindi á hádegisfundinum kom í þáttinn og sagði okkur frá því sem þar kom fram.

Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá hlutverki Epstein-Barr veirunnar í myndun MS sjúkdómsins. Það var vissulega flókið en hún útskýrði það betur fyrir okkur í þættinum.

Tónlist í þættinum í dag:

Vorkvöld í Reykjavík / Ragnar Bjarnason (Evert Taube, texti Sigurður Þórarinsson)

Bíólagið / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson)

Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)

Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)

UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

11. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,