
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á laugardaginn var haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Lífræni dagurinn og í þetta sinn í Kringlunni. Þar gat fólk kynnst lífrænni ræktun og framleiðslu og ekki síst hitt fólkið sem stendur á bak við íslenska lífræna matinn. Anna María Björnsdóttir var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir stöðuna á lífrænum landbúnaði á Íslandi og hvernig framtíðin lítur út.
Heimildarmyndin Fuglar (og menn) var frumsýnd í síðustu viku. Í henni er fylgst með hjónunum Ólafi Aðalsteinssyni og Jóhönnu Ólafsdóttur sem hafa í rúma tvo áratugi helgað sumur sín verndun og uppbyggingu æðarvarps í Loðmundafirði á Austfjörðum. Myndin sýnir á afar fallegan og hispurslausan hátt samband manns og náttúru, en Ólafur hefur til dæmis byggt sex þúsund fuglakofa í firðinum fyrir kollurnar enda koma sífellt fleiri fuglar þangað á hverju ári. Ingvar Þórðarson, einn leikstjóra og framleiðandi myndarinnar, kom í þáttinn ásamt Pálma Benediktssyni, en hann er tengdasonur Ólafs og Jóhönnu og kemur sjálfur fram í myndinni.
Að lokum kynntum við okkur málþingið Mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar sem verður haldið á miðvikudaginn í Loftskeytasöðinni. Þar verður varpað ljósi á hlutverk hvala í vistkerfinu og tengsl þeirra við líffræðilega fjölbreytni, hringrás næringarefna, frumframleiðni, kolefnisbindingu og heilbrigði hafsins. María Theodóra Ólafsdóttir forstöðumaður Loftskeytastöðvarinnar og Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina sögðu okkur frá því sem þar fer fram í þætti dagsins.
Tónlist í þættinum:
Ég elska þig í akkorði / Ragnar Bjarnason og hljómsveit Svavars Gests (Neil Sedaka, texti Ómar Ragnarsson)
Rogastans /Brek (Jóhann Helgi Benediktsson, Harpa Þorvaldsdóttir, Sigmar Þór Mattíasson, Guðmundur Atli Pétursson, texti Jóhann Helgi Benediktsson)
Rock’n roll öll mín bestu ár / Brimkló (K. Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson)
Breaking up is hard to do / Neil Sedaka (Neil Sedaka & Greenfield)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.