Mannlegi þátturinn

Leikárið í Tjarnarbíói, fréttaauki úr réttum frá 1963 og Rán Tryggvadóttir lesandi vikunnar

Við héldum áfram fara yfir sviðið, bókstaflega, og forvitnast um það sem er á leiksviðum landsins á nýhöfnum leikvetri. Í dag kom til okkar Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri Tjarnarbíós. Tjarnarbíó hefur verið kallað heimili frjálsu leikhópanna og Snæbjörn sagði okkur frá fjölbreyttri dagskrá vetrarins í þættinum.

Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, til okkar með gullmola af safni RÚV. Í dag kom hún með brot frá árinu 1963, þar sem Stefán Jónsson umsjónamaður fréttaauka fór í Skeiðarétt og ræddi við til dæmis fjallkóngana Magnús Árnason og Sigurgeir í Skáldabúðum, Guðmund Stefánsson gangnamann og Jónu Magnúsdóttur kvenfélagskonu auk þess sem við heyrðum kraftmikil tilsvor Páls Árnasonar sem var fjallkóngur í marga áratugi. Það er óhætt segja réttarstemningin skilar sér í þessu stórskemmtilega 63gja ára gamla innslagi.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Rán Tryggvadóttir, lögfræðingur og doktor í höfundarétti. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Rán talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Ljóð Emily Dickinson

Berhöfða líf eftir Magnús Sigurðsson

Things in Nature Merly Grow e. Yiyun Li

Sálarljóð - úrval erlendra ljóða í þýðingu Atla Harðarsonar

Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu e. Olga Tokarczuk sem Árni Óskarsson íslenskaði

Handmaid’s Tale e. Margret Atwood

Gunnlaðarsaga e. Svövu Jakobsdóttur

Circe eftir Madeline Miller

Tónlist í þættinum:

Þú ert / Helgi Pétursson (Þórarinn Guðmundsson, texti Gestur eða Guðmundur Björnsson)

Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason)

Undir dalanna sól / Álftagerðisbræður (Björgvin Þ. Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

14. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,