Mannlegi þátturinn

Jensína Reykvíkingur ársins, Branislav Bédi og veðurspjall um hitabylgju í Evrópu

Reykvíkingur ársins var kynntur á dögunum, hann er valinn út frá tilnefningum, einstaklingar sem hafa með háttsemi sinni eða atferli verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Eftir yfirferð á tilnefningum var tekin ákvörðun um veita Jensínu Eddu Hermannsdóttur titilinn, en hún er þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi og hefur starfað af heilindum málefnum barnanna í leikskólanum Laufásborg. Jensína kom í þáttinn í dag.

Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við Háskóla Íslands. Námskeiðið var sérstaklega hannað fyrir námsmenn sem komu hingað frá erlendum háskólum. Branislav Bédi kom í þáttinn í dag, en hann kemur frá Slóvakíu og er doktor í annarsmálsfræðum við Árnastofnun og hefur kennt íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur var svo með okkur í dag í veðurspjallinu í beinni útsendingu úr hitanum í Rómarborg. Í dag horfði hann einmitt til hitabylgjunnar í Evrópu, hvað hefur mælst hár hiti og hverjar eru horfurnar? Í því samhengi fræddi hann okkur um rauða hitaviðvörun, hvað þýðir hún? Hverjar eru ástæður þessa og hvað er hitahvelfing? Og hver er tengingin á milli hitabylgjunnar og kalds sjós og lofts suðvestan Íslands? Í restina fór Einar svo aðeins yfir horfurnar hér heima framundan.

Tónlist í þættinum í dag:

Í huga mér / Brimkló (Quillan Pierce, texti Jón Sigurðsson)

Allt það góða / Helgi Pétursson (Kris Kristoferson, texti Jónas Friðrik Guðnason)

Á úthafsins öldum / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)

Turistens klagan / Cornlis Vreeswijk (Cornelis Vreeswijk)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

23. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,