• 00:06:44Hinrik Ólafsson föstudagsgestur
  • 00:21:39Hinrik Ólafsson - seinni hluti
  • 00:39:27Matarspjallið - súrmjólk og purusteik

Mannlegi þátturinn

Hinrik Ólafsson föstudagsgestur og súrmjólk og purusteik í matarspjallinu

Hinrik Ólafsson leikari og leiðsögumaður var föstudagsgesturinn okkar í dag en hann er handritshöfundur og leikstjóri nýrrar íslenskrar heimildarmyndar, Above Iceland, sem verður frumsýnd í Bíó Paradís 10.júní. Í henni er fjallað um eldfjöll, jöklar, þjóðsögur og lífsbaráttu þjóðar. Myndin er sérstök fyrir það leyti hún er aðallega tekin upp ofan með drónum. Hinrik Ólafsson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1993 og hefur starfað sem leikari í leikhúsum landsins og í fjölda kvikmynda- og sjónvarpsverkefna.

Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjallið. Grasið grænkar, laufblöðin spretta fram, beðin fyllast af gróðri, velkomnum og óvelkomnum og alltaf þurfum við borða. Við töluðum lengst af um súrmjólk, minningar og nostalgíu henni tengd og aðeins í lokin um purusteik.

Tónlistin í þættinum:

Times like these / Glen Campbell (Foo Fighters lag)

Time in a bottle / Jim Croce (Jim Croce)

You´ve got friend / James Taylor (Carole King)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

5. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,