Mannlegi þátturinn

Karlakór Reykjavíkur 100 ára, af heimsókn konungs 1907 og Henning Emil lesandi vikunnar

Það er mikil tónlistarveisla framundan hjá Karlakór Reykjavíkur sem fagnar 100 ára afmæli í ár. Frá árinu 1926 hefur kraftur og fallegur samhljómur einkennt kórinn og í tilefni afmælisins verður heil tónleikaröð í Langholtskirkju þar sem kynslóðabilið verður brúað með aðstoð vinakóra úr íslenska og færeyska karlakórssamfélaginu og stórvirki gömlu meistarana verða flutt auk léttari sönglaga. Stjórnandi kórsins Friðrik S Kristinsson og formaður kórsins Bóas Valdórsson komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá tónleikunum og kórstarfinu.

Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið, en þar tók Helga Jóna Eiríksdóttir skjalavörður og sagnfræðingur á móti okkur. En hún deildi með okkur skjölum sem varðveitt hafa verið frá því Friðrik 8. Danakonungur kom í heimsókn til Íslands árið 1907. Fyrir litla og fámenna þjóð þurfti lyfta grettistaki, jafnvel mörgum, til þess geta tekið á móti konungi og fylgdaliði svo sómi væri að. Helga Jóna fór með okkur yfir þessa heimsókn og sýndi okkur heilmargt merkilegt sem varðveist hefur frá henni.

Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn Henning Emil Magnússon prestur í Mosfellsbæ. Hann sagði okkur frá því hvað hann hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Henning talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Bread of Angels e. Patti Smith

Leðurblakan og perutréð e. Yosa Buson

Missing Person e. Patrick Modiano

Glerþræðirnir e. Magnús Sigurðsson

Dísa Ljósár

Íslandsklukkan

Gísla saga Súrssonar

Gyrðir Elíasson

Tónlist í þættinum á mánudaginn 20.apríl

Sólin er komin / Mugison (Mugison e. Örn Elías Guðmundsson)

Hraustir menn / Karlakór Reykjavíkur (Sigmund Romberg, texti Jakob Jóhannesson)

Allt ljómar / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

20. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,