Mannlegi þátturinn

Ísleifur B. Þórhallsson föstudagsgestur og súpur í matarspjallinu

Ísleifur B. Þórhallsson tónleikahaldari er heldur betur búin vera mikið í fjölmiðlum undanfarið en hann hélt utan um tvenna stórtónleika Laufeyjar um síðustu helgi fyrir hönd Senu. Ísi í Senu, eins og hann er oftast kallaður, hefur hefur ýmislegt reynt í tónleikahaldi hér á Íslandi undanfarna áratugi en hann byrjaði ungur spá í kvikmyndir, tónlist og viðburðahald. Hann var föstudagsgestur í Mannlega þættinum í dag og við fórum með honum um víðan völl en þó tónleikar Laufeyjar í Kórnum hafi verið gríðarlega umfangsmiklir og í ótrúlega mörg horn líta þá var hann alls ekki kominn í frí eins og við heyrðum í spjallinu.

Sigurlaug Margrét var veðurteppt í bústað við Meðalfellsvatn og við töluðum við hana um súpur til hlýja okkur í veðrinu sem gengur yfir landið.

Tónlist í þættinum í dag:

Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Peter Callander, Geoff Stevens, texti Iðunn Steinsdóttir)

Ber / Amor Vincit Omnia (Baldur Skúlason og Erla Hlín)

Black / Pearl Jam

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

20. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,