Mannlegi þátturinn

Gervigreind í fjármálum, 100 ára saga útvarps á Íslandi og veðurspjallið

Hvaða störf á fjármálamarkaði eru líkleg til hverfa vegna gervigreindar og hvaða störf verða til og hvaða hæfni þarf starfsfólk helst hafa í nánustu framtíð. Þessa viku fer fram ráðstefnan Viðskipti og vísindi hjá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Þar koma saman fræðafólk, sérfræðingar og stjórnendur úr atvinnulífinu til ræða nokkur af heitustu viðfangsefnum viðskipta í dag, allt frá gervigreind og framtíð starfa til fjárfestinga og jafnréttis í atvinnulífinu. Hersir Sigurgeirsson prófessor í fjármálum við og Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri hjá Arion banka, komu í þáttinn í dag.

Á morgun eru liðin hundrað ár frá fyrstu formlegu útvarpssendingunni hér á landi, en hún fór fram í Loftskeytastöðinni í Reykjavík þann 18. mars 1926 og hófst þá nýr kafli í íslenskri miðlunarsögu. Sigurður Harðarson, rafeindavirki og fjarskiptasérfræðingur hefur um áratuga skeið unnið uppsetningu, viðhaldio gþróun fjarskiptakerfa víða um land auk varðveislu útvarpstækja og fjarskiptasögu á Íslandi. Hann kom til okkar í dag og með honum kom Anna Diljá Sigurðardóttir, sýningarstjóri sýningarinnar H.f. Útvarp - dagurinn sem útvarpið varð veruleika. Við ræddum sem sagt við þau um sögu útvarps á Íslandi í útvarpi á Íslandi í dag.

Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Hann byrjaði á tíðarfarinu, en það hefur verið mikill gangur í veðrinu og við erum ekki alveg laus undan norðanáttinni og snjókomunni enn. Á fimmtudag hlánar nokkuð snögglega og frekari sviptingar er síðan sjá áfram. Svo fór Einar með okkur aftur til ársins 1953, þegar mikil heræfing Atlantshafsbandalagsins fór eiginlega í vaskinn hér við land vegna veðurs. Hann rifjaði upp gamalt viðtal sem því tengist og ljóð eftir Jakobínu Sigurðardóttur skáldkonu um sama mál.

Tónlist í þættinum í dag:

Kling klang / Dátar (Þórir Baldursson, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)

Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Toggi, Sveinbjörn Bjarki Jónsson, texti Páll Óskar Hjálmtýsson)

Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson)

Daybreak / Frank Sinatra & Tommy Dorsey and his Orchestra (Ferda Grofé)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

17. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,