Mannlegi þátturinn

Sprengjan sem sprakk, gullmoli frá 1968 um brautryðjanda og Benedikt lesandi vikunnar

Guðrún Hálfdánardóttir, dagskrárgerðarkona hér á Rás kíkti til okkar í dag og sagði okkur frá þáttum sem hún hefur verið gera, Sprengjan sem sprakk, sem segir áhugaverðar sögu og frásagnir tengdar hernámi Breta á fimmta áratug síðustu aldar, atburðir sem aldrei hafa liðið úr huga þeirra sem þá upplifðu. Hún segir okkur frá símtali sem hún fékk frá hlustanda, Erni Smith, 82gja ára og er búsettur í Hveragerði. Hann hafði mjög merkilega sögu segja um sprengju sem hann og vinir hans fundu á sjötta áratugnum fyrir austan fjall. Við fengum heyra brot úr viðtalinu við hann og Guðrún kom með brot úr sprengjunni sem Örn færði henni. Guðrún sagði okkur frekar frá þættinum og nýjum þáttum sem hún hefur einnig verið vinna, enn um menntamálin, Kerfið, sem hefja göngu sína á Rás 1 á morgun, þriðjudaginn 10.mars.

Svo var það enn einn gullmolinn af safni RÚV sem Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, deilir með okkur hér í þættinum annan hvern mánudag. Í þetta sinn var það viðtal Stefáns Jónssonar, frá 1968, við Kristleif Jónsson sem var fæddur 1899 og var brautryðjandi í vegagerð á Vestfjörðum. Helga sagði okkur betur frá viðtalinu og við heyrðum það í þættinum.

Svo var það auðvitað lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur, sem býr á Indlandi, en er á landinu til fylgja eftir bók, Gáttir, sem kemur út á næstunni og því gripum við hann glóðvolgan og fengum hann til segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Benedikt talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Mother Mary Comes to Me e. Arundhati Roy

Ghost Eye e. Amitav Ghosh

Gabriel García Marquez: Hundrað ára einsemd

Marcel Proust: Í leit glötuðum tíma

Rainer Maria Rilke: Minnisblöð Maltes Laurids Brigge

Tónlist í þættinum:

Við viljum lifa / Ríó tríó (Alberto, texti Helgi Pétursson)

Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson ( Meisel, texti Theódór Einarsson)

Moist / PPCX

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Birt

9. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,