Mannlegi þátturinn

Þorbjörg og breytingaskeiðið, Þorvaldur Lúðvík segir sína sögu og vísindaspjall Eddu

Hormónar, breytingaskeiðið, mataræði og ýmislegt fleira sem snýr heilsu kvenna. Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrungarfræðingur og næringarþerapisti er komin til landsins og við spjölluðum við hana um þessi mikilvægu mál í dag.

Fyrir ári greindist Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson athafnamaður á Akureyri með erfitt krabbamein í vélinda og hefur í kjölfarið þurft á aðgerð halda, einu sinni í viku, til halda fæðuvegi opnum. Þær aðgerðir voru framkvæmdar á sjúkrahúsinu á Akureyri en fyrir skemmstu hefur hann þurft sækja þessa þjónustu til Reykjavíkur. Hann skrifaði nýlega grein í fjölmiðla þar sem hann setur spurningamerki við þessa löngu leið í aðgerðina og reiknaði út árið 2024 færi fólk af landsbyggðinni 25-30 þúsund ferðir til höfuðborgarinnar til sækja læknisþjónustu á Landspítalann og kostnaðurinn við það væri rúmur milljarður. Þorvaldur spyr hvort það borgi sig virkilega Sjúkratryggingar, þ.a.l. ríkið og skattgreiðendur, greiði fyrir allar þessar ferðir til Reykjavíkur til sækja þangað læknisþjónustu sem í mörgum tilvikum væri hægt framkvæma á landsbyggðinni? Við ræddum við Þorvald Lúðvík í dag.

Eva Olgudóttir kom í þáttinn með vísindaspjall sitt eins og undanfarna miðvikudaga. Í þetta sinn sagði hún okkur frá því hvaða áhrif krabbamein í æsku getur haft á fólk seinna meir í lífinu.

Tónlist í þættinum

Þú trumpar ekki ástina / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason)

Jag har det travlt / Tina Dickow (Tina Dickow)

Dont Blame It on That Girl / Matt Bianco (Mark Reilly & Mark Fisher)

Harvest / Rufus Wainwright, Chris Stills og Andrew Bird (Neil Young)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

4. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,