Mannlegi þátturinn

Hvenær ertu neyðartilfelli? Leiklistarverkefnið Léttir og vísindaspjallið

Árið 2024 tóku 48 einstaklingar líf sitt á Íslandi og voru 35 þeirra karlar. Þessi háa tala er ástæða þess augum er beint körlum í meistaraprófsrannsókn sem Kristjana Atladóttir geðheilbrigðisfræðingur gerði í geðheilbrigðisfræði við Háskólann á Akureyri og kynnti nýlega niðurstöður úr. Rannsóknin er fyrsta hér á landi sem skoðar sérstaklega reynslu ungra karla sem hafa reynt taka líf sitt en mun færri karlar en konur leita til heilbrigðiskerfisins eftir sjálfsvígstilraun. Sameiginlegur þráður karlana sem rætt var við, var upplifun hafa ekki stjórn á eigin lífi, vera lítils virði og hafa viðvarandi sjálfsásakanir. Þessar upplifanir samræmast kenningum um áhrif áfalla á sjálfsmynd einstaklinga. Kristjana Atladóttir sagði okkur betur frá rannsókninni í þættinum í dag.

Verkefnið Léttir er leiklistarsmiðjur og námskeið fyrir börn foreldra sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi. Markmiðið er efla sjálfstraust, félagsfærni og leikgleði barnanna og notast er við áfallamiðaða nálgun því börnin hafa oft upplifað áföll eins og stríð, aðskilnað frá fjölskyldu og fleira. Þetta er samstarfsverkefni Barnaheilla og Borgarleikhússins og Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla og Eva Halldóra Guðmundsdóttir, yfirkennari í Leiklistarskóla Borgarleikhússins komu til okkar í dag.

Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í þetta sinn sagði hún frá rannsókn sem sýnir það eru ekki tengsl milli covid bólusetningar og taugaþroskaskerðingar, einhverfu.

Tónlist í þættinum í dag

Eitt af blómunum / Páll Óskar (Benni Hemm Hemm og Páll Óskar)

Heimahöfn / Fjallabræður (Hákon Guðni Hjartarson Halldór Gunnar Pálsson)

Bolludagur! Sprengidagur! Öskudagur! / Ingibjörg Þorbergs (Ingibjörg Þorbergs)

Leyndarmál / Bubbi (Bubbi Morthens)

(Hvert er hægt leita? Ef þú eða einhver sem þú þekkir glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfskaðandi hegðun alltaf hafa samband við Píeta-samtökin, pieta.is og í síma 552-2218. Þá er hjálparsími Rauða krossins opinn allan sólarhringinn í síma 1717 og netspjall á heimasíðunni 1717.is)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

18. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,