Mannlegi þátturinn

Sóknaráætlun Vestfjarða, Skjaldbakan og Elín Björk lesandi vikunnar

Við fræddumst um Sóknaráætlun Vestfjarða í þættinum í dag, en Uppbyggingarsjóður Vestfjarða er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk styrkja verkefni sem falla Sóknaráætlun Vestfjarða. Sóknaráætlanir hafa skilað töluverðu til landshlutanna og hafa fjölmörg verkefni komið til framkvæmda fyrir þeirra tilstuðlan. Fjöldi verkefna hefur fært sér Uppbyggingarsjóðinn í nyt sem eflt hafa menningar- og atvinnulíf á svæðinu. Við töluðum í dag við Skúla Gautason menningarfulltrúa Vestfjarða.

Karna Sigurðardóttir kvikmyndagerðarkonu er ein þeirra sem hlaut styrk úr Uppbyggingasjóðnum fyrir verkefnið Skjaldbökuna, en það er námskeið í heimildamyndagerð fyrir krakka á miðstigi, 10-12 ára, þar sem þau hafa gert stuttar heimildarmyndir um fjölbreytt umfjöllunarefni í þeirra nágrenni. Karna sagði okkur betur frá í þættinum.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinu í þetta sinn var Elín Björk Jóhannsdóttir, bókmenntafræðingur en hún starfar sem ritstjóri og verkefnastjóri hjá Háskólaútgáfunni. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Elín Björk talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Wifedom: Mrs Orwell’s Invisible Life e. Anna Funder

Huldukonan eftir Fríðu Ísberg

Emily Wilde-serían e. Heather Fawcett

Jonathan Strange and Mr. Norrell e. Susanna Clarke

Guðrún Eva Mínervudóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Kristín Marja Baldursdóttir,

og Sarah Waters og höfundarverk hennar

Tónlist í þættinum:

Upp í sveit / Hjálmar (Magnús Eiríksson)

Blue Valley Songbird / Dolly Parton (Dolly Parton)

Ísland / Spilverk þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

19. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,