Táknmálstónleikar,Vox Feminae 30 ára og sundlaugarmenning
Sérstakir táknmáls-tónleikar verða haldnir í Tjarnarbíói næstu helgi þar sem sviðsett verða ljóð á íslensku táknmáli og kannaðar verða nýjar slóðir í sviðslistum.Heyrnalausir og heyrandi sitja hlið við hlið á tónleikunum þar sem Döff ljóðlist og kórverk skapa áður óséðan samleik. Þau komu hingað Haukur Darri Hauksson og Elísabet Thea Kristjánsdóttir.
.
Í ár fagnar kvennakórinn Vox feminae 30 ára starfsafmæli . Í gegnum tíðina hefur Vox feminae lagt metnað sinn í að auka veg kvennakóratónlistar á Íslandi með því að fá íslensk tónskáld til að semja ný verk fyrir kórinn. Á þessu afmælisári mun kórinn frumflytja ný verk eftir tónskáldin Eygló Höskuldsdóttir Viborg svo og eftir Stefan Sand sem nýverið tók við stjórn kórsins. Við ræddum við þær Margréti Pálmadóttur sem stjórnað hefur kórnum lengst af og Þórdísi Guðmundsdóttur formann kórsins.
Sigurlaug Dagsdóttir er verkefnastjóri vefsins Lifandi hefða hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og hún kom til okkar og sagði okkur aðeins frá tilgangi þessa vefs en einnig frá þeirri undirbúningsvinnu sem nú fer fram er tengist skráningu sundlaugamenningar á Íslandi inná vefinn. Sú vinna er veigamikið skref í undirbúningi að tilnefningu hefðarinnar á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.