
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Bandarísk stjórnmál voru til umfjöllunar þegar Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og ræddi við Sigríði Rut Júlíusdóttur. Þar er af nógu að taka; lokanir ríkisstofnana, niðurskurður, skautun, mótmæli og breytingar á kjördæmum var meðal þess sem þau ræddu um.
Við fjölluðum um Keflavíkurflugvöll og starfsemina þar, sem margir hafa skoðun á. Þannig er að ríkisvaldið leggur Isavia ýmsar skyldur á herðar - Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði, hefur mátað þær skyldur við þann veruleika sem blasir við honum. Hann sagði okkur frá útkomunni.
Steinunn Gestsdóttir prófessor í sálfræði upplifði að fótunum var algjörlega kippt undan henni eftir að hún veiktist af Covid. Hún er ein þeirra fjölmörgu sem fengu langvinnt Covid, og segir þennan hóp enn mæta skilnings- og úrræðaleysi. Við ræddum við Steinunni og Friðbjörn Sigurðsson, lækni, sem starfar hjá Akureyrarklíníkinni sem sérhæfir sig í meðhöndlun.
Tónlist:
Matt Monro - From Russia with love.
Matt Monro - Born free.
Mikael Máni Ásmundsson - What Once Was.
Víkingur Heiðar Ólafsson - Piano sonata no.16 in C major "Sonata facile" K545 : Andante.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.