Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Ísrael og Palestína, Evrópuþingskosningarnar og kosningabarátta fyrri ára

Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði á föstudaginn að Ísraelar skyldu hætta árásum á Rafah sem talist geta til þjóðarmorðs. Þá hefur alþjóðasakamáladómstóllinn farið fram á handtökuskipanir á hendur ráðamönnum bæði Ísraels og Hamas. Engu að síður halda árásir áfram. Við ræddum stöðu mála í Ísrael og Palestínu við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing í Bretlandi.

Kosningar til Evrópuþingsins hefjast eftir viku - þar er kosið um 720 þingsæti og yfir fjögur hundrað milljónir manna eru á kjörskránni. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel og Dóra Sif Tynes lögmaður ræddu um kosningarnar.

Í síðasta hluta þáttarins lékum við brot úr þáttaröðinni “Í þjónustu þjóðar” sem var á dagskrá Rásar 1 í aðdraganda forsetakosninganna 2016 - þegar við síðast kusum nýjan forseta. Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður ræddi þá við Björn Þór og þau skoðuðu skjöl sem tengjast forsetakosningum fyrri ára.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,