
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Hatur og hótanir í stjórnmálum voru umfjöllunarefni okkar þegar Jón Gunnar Ólafsson, lektor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, kom í þáttinn. Við höfum fjallað um umræðuna um þessi mál í Svíþjóð undanfarið en færðum hana nú hingað heim og spurðum um hvað er vitað um stöðuna.
Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, sagði meðal annars frá kosningum í Hollandi seinna í vikunni og leiðtogafundunum sem haldnir voru fyrir helgi.
Í dag, 27. október, eru 70 ár frá því að tilkynnt var að Halldór Laxness hlyti bókmenntaverðlaun Nóbels það árið. Við notuðum tækifærið, ekki síst í ljósi umræðunnar um skáldið og bækurnar hans síðustu vikur, og spurðum – hvernig á að byrja að lesa Laxness? Silja Aðalsteinsdóttir ritstjóri og bókmenntafræðingur var með okkur.
Tónlist:
Una Stefánsdóttir, Stefán S. Stefánsson - Vorlauf.
MAAR - Any Other Day.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.