
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Enn koma íslenskir krakkar illa út úr Pisa-mælingu og aldrei verr en nú. Hæfni krakkanna er mæld en vandinn er sjálfsagt víðtækari; heimilin, skólakerfið, stjórnvöld, samfélagið í heild – allt er undir. Við spjölluðum um þetta við Bjarna Fritzson rithöfund og formann skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur.
Svo er það löggjafarþingið, það var sett í gær, forsætisráðherra flytur stefnuræðu ríkisstjórnarinnar í kvöld og umræður um fjárlög hefjast á morgun. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, kom til okkar.
Við ræddum áfram um loftslagsbreytingar, á mánudag töluðum við um öfgarnar í veðurfari og í dag ræddum við um það hvað þarf að gera til að undirbúa og aðlaga samfélagið að þessum öfgum. Helgi Þór Ingason verkfræðiprófessor og Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir sjálfbærnisérfræðingur sögðu frá.
Tónlist:
Ane Brun - Stormens øye.
Teitur Magnússon og Hildur Kristín Stefánsdóttir - Mónika.
Marína Ósk Þórólfsdóttir - Coffee song.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.