
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Ríkisstjórnin ætlar sér að vinna að þjóðarmarkmiði um að allir landsmenn skuli hafa fastan heimilislækni og draga markvisst úr skriffinsku í heilbrigðiskerfinu. Margrét Ólafía Tómasdóttir, formaður félags heimilislækna, kom á Morgunvaktina og ræddi þessi mál, meðal annars það hversu langt er í land til að markmiðið um heimilislækni fyrir alla náist.
Björn Malmquist var með okkur í þættinum. Meðal efnis í dag var undirbúningur Evrópusambandsins fyrir valdatöku Donalds Trump síðar í dag, stjórnarmyndunarviðræður í Austurríki og við heyrðum frá íslenskri konu, Aðalbjörgu Birnu Guttormsdóttur, sem hóf nýlega störf hjá umhverfisráðuneyti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Mikill munur er á því milli landsvæða hversu hár orkukostnaður heimila er. Ný skýrsla frá Byggðastofnun varpar ljósi á þróunina í bæði rafmagnsverði og húshitun síðustu árin, og Þorkell Stefánsson sérfræðingur hjá stofnuninni sagði frá.
Tónlist:
Heiða Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson - Milli gærdags og á morgun.
Systur - Með Hækkandi Sól (Ísland).
Shuteen Erdenebaatar quartet - I'm Glad I Got to Know You.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.