
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Forseti Bandaríkjanna heldur til Kína síðar í vikunni. Hvað verður rætt og hvernig er talað um Trump í Kína? Hvaða áhrif hefur staðan við Persaflóa? Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, doktorsnemi og sérfræðingur hjá Alþjóðamálastofnun, ræddi þessi mál.
Keir Starmer berst fyrir pólitísku lífi sínu eftir kosningarnar í Bretlandi í síðustu viku, og ekki í fyrsta sinn. Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur ræddi um stöðu Starmers, niðurstöðu kosninganna og breytingarnar sem orðið hafa á breskum stjórnmálum.
Fimm handrit eru komin til Íslands á láni frá Svíþjóð og þau verða til sýnis í Eddu frá og með morgundeginum. Svanhildur Óskarsdóttir og Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessorar komu í þáttinn og sögðu frá því handritunum og því hvernig þau enduðu í Svíþjóð.
Tónlist:
Mamas and Papas - Monday, Monday.
Mamas and Papas - Dedicated to the one I love.
Janis Ian - At seventeen.
Ragnheiður Gröndal - Rauðir skógar.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.