Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Kosningar á morgun, Stefán Máni í 30 ár og Enigma-tilbrigði Elgars

Í fyrsta hluta þáttarins var lesið úr ritinu Sveitarstjórnarmál sem Jónas Guðmundsson, eftirlistmaður sveitarstjórnarmálefna, gaf úr frá 1941. Annars vegar var lesið úr grein Jónasar frá 1944 um þróun sveitarstjórnarstigsins, allt frá landnámi, og hins vegar grein Harðar Bjarnasonar arkitekts frá 1941 um skipulag bæja. Tilefnið var sveitarstjórnarkosningarnar á morgun.

Rætt var við Stefán Mána rithöfund í tilefni þess að 30 ár eru liðin síðan hans fyrsta bók kom út. Sú þrítugasta er nýútkomin og von á tveimur til viðbótar á árinu.

Sjálfkjörið er í Snæfellsbæ í kosningunum á morgun. Auður Kjartansdóttir, forseti bæjarstjórnar, kom í kaffi, hún segir það ekki óskastöðu að einn flokkur sitji í bæjarstjórn en lofar að fara vel með valdið.

Að vanda var umfjöllun um sígilda tónlist á Morgunvaktinni á föstudegi. Magnús Lyngdal sagði frá breska tónskáldinu Edward Elgar og verkinu hans Enigma-tilbrigðunum. Leikin voru tóndæmi.

Tónlist:

Chiquitita - Björn Thoroddsen,

Hotel California - Eagles.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,