
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fyrir fimmtán árum var Íslandsstofu komið á fót. Henni var ætlað að efla ímynd og orðspor landsins.
Hvernig ætli það gangi? Hvaða augum líta aðrir þjóðir Ísland og Íslendinga? Verkefnin eru reyndar margvísleg, t.d að styðja íslensk fyrirtæki í útrás. Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmastjóri Íslandsstofu, spjallaði um stöðu Íslands í samkeppni þjóðanna um fjárfestingu, ferðamenn og allra handa tækifæri.
Norska ríkisstjórnin er sprungin, Miðflokkurinn gekk út úr henni í gær og Verkamannaflokkurinn er einn eftir. Ástæðan er ágreiningur um Evrópumál, en ágreiningur hefur verið innan beggja flokka. Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur þekkir vel til í Noregi, er nýflutt þaðan, og hún kom til okkar.
Magnús Lyngdal sagði okkur frá bresk-bandaríska hljómsveitarstjóranum Leopold Stokowski í spjalli um sígilda tónlist. Hann stýrði Fíladelfíu-hljómsveitinni í hátt í þrjá áratugi.
Tónlist:
Marianne Faithfull - As tears go by.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.