
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Blómlegar byggðir og öflugir byggðakjarnar, bætt lífskjör landsmanna og búsetufrelsi - með sem jöfnustu aðgengi að grunnþjónustu og fjölbreyttum tækifærum, og grunnþjónusta í nærsamfélaginu. Svona hljómar framtíðarsýn stjórnvalda í drögum að nýrri byggðaáætlun sem hefur verið birt. Við skoðuðum byggðamálin með Þóroddi Bjarnasyni, prófessor í félagsfræði.
Enn dólar skipið Bandero í íslenskri landhelgi. Það er hér til að stöðva hvalveiðar. Hvalur 8 og 9 eru hins vegar í höfn; það er bræla. En má Bandero vera á íslensku hafsvæði? Mega allir sigla allsstaðar? Við sökktum okkur ofan í haf- og siglingarétt með Bjarna Má Magnússyni lögmanni og sérfræðingi á því sviði.
Við rifjuðum svo upp söguna af Mt. Rushmore, þar sem höggmyndir af fjórum Bandaríkjaforsetum eru. Vera Illugadóttir þekkir þá sögu.
Tónlist:
Tríó Árna Ísleifs, Gerður Benediktsdóttir - Æ, ó, aumingja ég.
Paul Simon - 50 ways to leave your lover.
Björn Thoroddsen - I'll follow the sun.
Bob Dylan - I feel a change comin' on.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.