Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Kirkjur, blíðviðri og sígild tónlist

Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum var fyrsti gestur okkar í þætti dagsins og sagði frá Hólahátíð sem fer fram um helgina.

Kirkjan nýja í Grímsey var vígð síðastliðinn sunnudag að viðstöddu fjölmenni. Hjörleifur Stefánsson arkitekt kirkjunnar var auðvitað við athöfnina - hann spjallaði við okkur um kirkjuna og hönnun hennar vítt og breitt.

Það er útlit fyrir alveg hreint dásamlegt veður víða um land um helgina. Ekki allsstaðar, það verður jú hvasst á vesturhluta landsins. En veðrið verður best á Héraði, hitinn verður hvað hæstur þar - jafnvel 27 gráður og logn. Það heitir í dag bongóblíða. Við slógum á þráðinn austur og heyrðum hvað Kristinn Kristmundsson kaupmaður ætlar að gera í góða veðrinu.

Svo var Magnús Lyngdal með okkur. Hann hélt uppteknum hætti og fjallaði um sígilda tónlist. Við heyrðum meðal annars í Angelu Gheorghiu og Jose Carreras í dag.

Tónlist:

Gunnar Gunnarsson - Ach Wärmeland du sköna.

Óskar Pétursson - Hún hring minn ber.

Árni Ísleifsson - Ég var rekinn í dag.

Anna Pálína Árnadóttir - Söngur Fríðu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,