
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Uppfæra þarf samstarfssamninginn milli Norðurlandanna, Helsingsforssáttmálann, svo hann endurspegli nýjar áskoranir og tækifæri sem Norðurlöndin standa frammi fyrir. Samningurinn ætti að taka líka til öryggis- varnar og viðbúnaðarmála. Þetta er niðurstaða starfshóps sem hefur unnið að uppfærslu samningsins undanfarið. Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar fór fyrir hópnum, og hún kom á Morgunvaktina.
Kosið verður til Evrópuþingsins eftir sex vikur. Í spjalli um stjórnmál í Evrópu fór Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, yfir nýja könnun sem sýnir m.a. að útlit er fyrir talsvert meiri kosningaþátttöku en síðast. Öryggis- og varnarmál, efnahagsmál, heilbrigðismál og fátækt eru þau mál sem kjósendur telja brýnustu viðfangsefni Evrópuþingsins.
Á aðalfundi Byggðastofnunar í síðustu viku var Landstólpinn afhentur en það er hvatningar- og bjartsýnisviðurkenning sem stofnunin veitir vegna vel heppnaðra byggðaverkefna. Enskumælandi ráðið í Mýrdalshreppi hlaut viðurkenninguna í ár. Í því situr fólk sem ekki á íslensku að móðurmáli og hefur þar vettvang til aðkomu að málefnum sveitarfélagsins. Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri sagði okkur frá Enskumælandi ráðinu.
Tónlist:
Hold me, thrill me, kiss me - Carter, Mel.
Fifth Dimension, The - Aquarius.
Tritt, William, Cincinnati Pops Orchestra - Theme from 'Love story' ((1970).
Hoff, Jan Gunnar - The years.
Simone, Nina - Love o' love.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.