
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Það vakti athygli í síðustu viku þegar dómsmálaráðherra ákvað að auglýsa laust til umsóknar embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Lögreglustjórinn brást við með að segja upp. Líklega er ekki öllum ljóst hvenær auglýsa ber opinber embætti og störf og hvenær ekki – og hvaða heimild ráðherra hefur til að ráða því. Við skoðuðum lögin með Gísla Tryggvasyni lögmanni.
Arthur Björgvin Bollason fór yfir þýsk málefni. Stjórnmál, mannlíf og fótbolti voru á dagskrá að þessu sinni.
Svo buðum við í kaffi góðkunningja hlustenda Rásar 1. KK er í hópi ástsælustu tónlistarmanna þjóðarinnar - við þekkjum lögin hans vel; flest eða mörg leikur hann á gítarinn sinn og syngur. En nú stendur mikið til; hann ætlar að flytja þau í Eldborg á fimmtudag og föstudag með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Við röbbuðum við KK um lögin hans – og lífið og tilveruna.
Tónlist:
Bræðrabandalagið - Sólarsamba.
Brimkló - Eitt lag enn.
Stína Ágústsdóttir - Kysstu mig að morgni.
FC Bayern - Stern des Südens.
KK, Jón Jónsson - Sumarlandið.
Kristján Kristjánsson - Svona eru menn.
Kristján Kristjánsson - Á æðruleysinu.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.