Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Fjölmiðlar, Ormsbók og sígild tónlist

Fyrsti gestur þáttarins í dag var Gunnar Smári Egilsson blaðamaður. Tilefnið er sumpart óvenjuleg dagskrá á Samstöðinni, hún hefst í fyrramálið og ætlunin er að tala um þjóðmál sleitulaust nokkuð inn í sunnudaginn. Maraþon-Málþóf kalla þau þetta.

Eftir Morgunfréttir flettum við Ormsbók Snorra-Eddu með Guðrúnu Nordal, forstöðumanni Árnastofnunar. Ormsbók er stórmerkilegt handrit; í því er fjallað um skáldskaparfræði og málfræði, og meðal annars er latneska stafrófið fellt að íslensku hljóðkerfi.

Sígilda tónlistin átti svo hug okkar allan milli hálf níu og níu. Magnús Lyngdal leiðir okkur í allan sannleika um rússneska tónskáldið Nikolai Rimsky-Korsakov og einkum verkið Scheherazade sem Rimsky-Korsakov samdi 1888.

Tónlist:

Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Vilhjálmur Vilhjálmsson - Það er bara þú.

Benjamín Gísli Einarsson - Absent Light.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,