Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Mannréttindastofnun Íslands hefur tekið til starfa

Fyrsti gestur þáttarins var Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri nýstofnaðrar Mannréttindastofnunar Íslands. Hún sagði frá hlutverki og verkefnum stofnunarinnar sem enn er verið að koma á fót og spjallað var um mannréttindi vítt og breitt.

Björn Malmquist fréttamaður í Brussel fór yfir úrslit forsetakosninganna í Póllandi en síðari umferð fór fram í gær. Hann talaði líka um harða gagnrýni 20 Evrópusambandsríkja á ný lög í Ungverjalandi sem ætlað er að skerða réttindi hinsegin fólks og framtíðarsýn Ursulu Von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, fyrir sambandið.

Óveðri er spáð á landinu. Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur fór yfir horfurnar. Einnig var rabbað um blíðuna í nýliðnum maí.

Tónlist:

Austurstræti - Laddi,

Glugginn - Flowers,

Coffee song - Marína Ósk Þórólfsdóttir,

I'll follow the sun - Bítlarnir,

Carpenters - Rainy Days and Mondays - Carpenters,

Dust in the wind - Kansas.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,