
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Því er fagnað að sjötíu ár eru síðan Kópavogur fékk kaupstaðaréttindi. Það gerðist með lögum samþykktum á Alþingi 2. maí 1955. Þá hafði Kópavogur verið sjálfstæður hreppur í sjö ár en tilheyrði áður Seltjarnarnesi. Við héldum litla afmælisveislu; einum gesti var boðið: Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra.
Stríðslokanna í Evrópu fyrir áttatíu árum er minnst þessa dagana. Minningarathafnir voru víða um álfuna í gær og í sumum löndum fyrr í vikunni. Slík athöfn verður svo í Moskvu í dag.
Á sama tíma og hún fer fram munu utanríkisráðherrar og aðrir fulltrúar Evrópuríkja koma saman í Lviv í Úkraínu og sýna þannig Úkraínumönnum táknrænan stuðning. Friðrik Jónsson, sendiherra í Varsjá, verður fulltrúi Íslands. Við ræddum við hann.
Svo var það sígilda tónlistin. Í dag fjallaði Magnús Lyngdal um óperu Humperdinck-systkinana sem færðu ævintýri Grimm-bræðra um Hans og Grétu á svið óperuhúsa undir lok nítjándu aldar.
Tónlist:
Engelbert Humperdinck - The last waltz.
Engelbert Humperdinck - As time goes by.
Jónas Ingimundarson, Kristinn Sigmundsson - Hamraborgin.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.