Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Mataræði Íslendinga, þróunaraðstoð fryst og Lukashenko endurkjörinn

Matur og mataræði Íslendinga var umfjöllunarefni á Morgunvaktinni í dag. Er þróun mataræðis hér á landi á skjön við alþjóðlegar næringarráðleggingar? Jóhanna Eyrún Torfadóttir, verkefnastjóri næringar hjá embætti landlæknis og lektor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands, kom til okkar. Háskólinn og Landspítalinn eru að fara af stað með fundaröð undir yfirskriftinni Heilsan okkar.

Þórhildur Ólafsdóttir sagði okkur fréttir frá Úganda, þar sem mikið er rætt um stöðvun Bandaríkjanna á þróunaraðstoð við Afríkuríki, en afleiðingarnar geta verið háskalegar þar sem Bandaríkin eru langstærsti stuðningsaðili allrar aðstoðar af þessu tagi.

Lukashenko var endurkjörinn forseti Belarús um síðustu helgi. Vera Illugadóttir rifjaði upp sögu mannsins sem hefur verið þar við völd frá árinu 1994 og hefur verið kallaður síðasti einræðisherra Evrópu.

Tónlist:

Billie Holiday - Pennies from heaven.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,