Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Grindavík, Brussel og friður og öryggi kvenna

25 ár eru liðin frá því að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun 1325, sem fjallar um konur, frið og öryggi. Í dag búa þó fleiri börn, og almennir borgarar, í nálægð við ófrið og átök en verið hefur um langt skeið. Við ræddum um mikilvægi þess að konur komi að friðarumleitunum þegar Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women, kom á Morgunvaktina.

Björn Malmquist sagði okkur tíðindi frá Brussel, meðal annars af áætlun um stórbættar lestarsamgöngur á meginlandi Evrópu, það nýjasta um stækkunarmál sambandsins og fjármögnun til Úkraínu.

Í dag, 10. nóvember, eru tvö ár liðin frá því að Grindavík var rýmd í kjölfar mikilla jarðskjálfta. Við þekkjum það sem kom í kjölfarið. Við rifjuðum upp þennan örlagaríka dag, spjölluðum um líf Grindvíkinga undanfarin tvö ár og horfðum fram á veginn þegar Elínborg Gísladóttir sóknarprestur í Grindavík kom í þáttinn.

Tónlist:

Marína Ósk Þórólfsdóttir - Morgunn.

Mannakorn - Blús í G.

Sigríður Thorlacius - Svefnljóð (Ef sofnað ég get ekki síðkvöldum á).

Count Basie and his Orchestra - Sweety cakes.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,