
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Í spjalli um efnahag og samfélag sagði Þórður Snær Júlíusson m.a. frá nýju mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á stöðu efnahagsmála. Hún er þokkaleg og ætti að fara batnandi. Vaxtamál Neytendasamtakanna, mislukkað hlutafjárútboð Íslandshótela og sáttagreiðsla Björgólfs Thors voru líka á dagskrá.
Arthúr Björgvin Bollason sagði frá vandræðum forystumanna popúlistaflokksins AfD. Tveir efstu á lista til Evrópuþingsins hafa dregið sig í hlé frá kosningabaráttunni vegna yfirlýsinga er varða SS sveitir Nasistaflokksins. Hann talaði líka um muninn á Berlín og gömlu höfuðborg Vestur-Þýskalands Bonn.
Þegar útkall barst vegna rútuslyssins á Rangárvallavegi á laugardag fór af stað mikill viðbúnaður hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Sigurður Böðvarsson, framkvæmdastjóri lækninga, sagði frá störfunum þar þegar fjöldaslys verður í fjórðungnum.
Tónlist:
Lifiði og dó í Reykjavík - Mannakorn,
Hvernig hugsar þú þitt hverfula líf - Heiða Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson,
Star of spring - Anna Gréta Sigurðardóttir,
Her house - Anna Gréta Sigurðardóttir.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.