Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Raforkumarkaður, Berlínarspjall og friðsælasta land í heimi

Raforkumarkaðurinn er samkeppnismarkaður - eða á að heita samkeppnismarkaður. Fólk getur valið af hvaða fyrirtæki það kaupir rafmagn. Og það er hægt að kaupa rafmagn af fyrirtækjum sem hvorki framleiða né dreifa rafmagni. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, talaði um rafmagn og samkeppni.

Er afstaða Þjóðverja til Ísraelsmanna að breytast? Merz Þýskalandskanslari virðist í fyrsta sinn vera að endurskoða afstöðu sína til ísraelskra stjórnvalda og um það var rætt í Berlínarspjalli með Arthuri Björgvini Bollasyni.

Ísland er friðsælasta land í heimi samkvæmt nýrri úttekt, – og hefur verið frá því að sérstök stofnun um efnahagsmál og frið hóf að leggja stöðu mála í ríkjum heims við sérstaka friðarmælistiku fyrir átján árum. Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands, kom til okkar.

Tónlist:

Ágúst Bjarnason - Malakoff.

Sigurður Björgvinsson, Hljómsveit Stefáns P. - Þórður Malakoff.

Mikael Máni Ásmundsson - Tvær stjörnur.

Gary Burton - Open your eyes, you can fly.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,