
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Verg landsframleiðsla mælir efnahagslegt ástand hagkerfa en nær ekki fyllilega utan það sem skiptir máli - velsæld fólk, félagslegt réttlæti og sjálfbærni. Þrátt fyrir áratugi af vexti finnst mörgu fólki það verða útundan. Því þarf að setja manneskjur og jörðina sjálfa í forgrunn ákvarðana. Það sem við mælum hefur áhrif á það sem við metum mikils.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum, sem við ræðum þegar þau Silja Elvarsdóttir og Ásgeir Brynjar Torfason komu í þáttinn en þau eru meðal þeirra sem standa síðar í dag að stofnun miðstöðvar velsældarhagkerfis hér á landi.
Borgþór Arngrímsson kom svo í þáttinn og ræddi dönsk málefni. Enn er Danmörk án ríkisstjórnar þó ýmislegt sé að gerast í þeim málum. Við spjölluðum líka um hátt íbúðaverð í Kaupmannahöfn, sem Seðlabankinn þar í landi hefur áhyggjur af, og um konungsfjölskylduna.
Skæður ebólufaraldur geysar í Austur-Kongó og er þegar orðinn sá þriðji versti í sögu landsins. Ebóla blossar reglulega upp í Austur-Kongó en ebóluveiran greindist í fyrsta sinn í landinu, sem þá hét Saír, fyrir fimmtíu árum, eftir mannskæðan faraldur sem hverfðist um lítið sjúkrahús í afskekktu frumskógarþorpi. Vera Illugadóttir sagði þessa sögu.
Tónlist:
Tómas R. Einarsson, GDRN - Ég bið ekki um meir.
Les Go de Koteba - Tougna fo.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.