
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fjögur ár eru í dag síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Árásir hafa staðið linnulítið síðan þrátt fyrir víðtæka alþjóðlega fordæmingu; og þvingunaraðgerðir og samþykktir t.d. Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna. Hópur þjóðarleiðtoga er kominn til Kyiv, til að sýna Úkraínumönnum stuðning á þessum tímamótum. Björn Malmquist fréttamaður er með í för og sagði okkur frá.
Stjórnmál og menning voru á dagskrá Berlínaspjalls í dag. Arthur Björgvin Bollason sagði okkur frá nýafstöðunum landsfundi Kristilegra demókrata, vandræðum AfD-flokksins og Kvikmyndahátíðinni í Berlín sem lauk um helgina.
Við fjölluðum líka um persónuvernd út frá sjónarhóli siðfræði og heimspeki. Við komum meðal annars inn á alla þessa miðlun okkar á persónuupplýsingum á alþjóðlegu samfélagsmiðlunum sem safna þeim og nota í ábataskyni. Sigurður Kristinsson heimspekingur og prófessor var með okkur.
Tónlist:
Eagles - Peaceful easy feeling.
Eagles - Take it easy.
Svavar Knútur Kristinsson - Refur.
Max Richter - Winter 1.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.