
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Yngstu hópar kjósenda eru ólíklegri en þeir sem eldri eru til að skila sér á kjörstað. Það er tilfellið í flestum kosningum og ekki bara á Íslandi, heldur í flestum vestrænum lýðræðisríkjum. Hvað gæti skýrt þetta og hvað er til ráða? Hulda Þórisdóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, sagði frá nýrri rannsókn á lýðræðisþátttöku og viðhorfum ungs fólks.
Borgþór Arngrímsson ræddi um Mette Frederiksen og árásina á hana um daginn, neyðarbirgðirnar sem stjórnvöld hvetja borgarana til að koma sér upp og lýðræðisfundinn á Borgundarhólmi sem fram fór á dögunum.
Fólki - og þá ekki síst konum og ungum bændum - bjóðast nú frekari möguleikar en áður á lánum hjá Byggðastofnun til að efla líf og treysta byggð úti um landið. Stofnunin nýtur bakábyrgðar Evrópska fjárfestingabankans sem gerir henni kleift að bjóða lánin á bærilegum kjörum. Hrund Pétursdóttir, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar, sagði frá þessu.
Tónlist:
Katrín Halldóra Sigurðardóttir - Ómissandi fólk.
Baez, Joan - Diamonds and rust.
Karl orgeltríó, Rebekka Blöndal - Því ég sakna þín.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.