
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Málefni Argentínu voru í brennidepli í Heimsglugganum. Bogi Ágústsson ræddi við Helga Hrafn Guðmundsson sagnfræðing, sem bjó í Argentínu í áratug og þekkir vel til stöðu mála. Nýr forseti, Javier Milei, hefur verið kjörinn og tekur brátt við völdum.
Helena Sverrisdóttir er hætt í körfubolta eftir langan og farsælan feril. Meiðsli urðu þess valdandi að hún varð að hætta. Hún kom í þáttinn og fór yfir upphafið, ferilinn og hvað tekur við nú.
Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, kom til okkar á óvenjulegum tíma. Hann fór yfir stöðu ferðaþjónustunnar í ljósi jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Tónlist:
Fitzgerald, Ella - But not for me.
Sosa, Mercedes, Gieco, Leon - Cancion para carito.
Hall, Daryl, Oates, John - Maneater.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.