
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Í Heimsglugganum var fjallað um bandarísk stjórnmál. Stöðu og horfur þar í landi. Bogi Ágústsson var á sínum stað og með honum var Sigríður Rut Júlíusdóttir sem lengi hefur fylgst grannt með pólitíkinni vestan hafs.
Svo var fjallað um fræðigreinina landfræði sem í stuttu máli tengir saman umhverfi og samfélag. Um 400 landfræðingar sitja Norræna landfræðiþingið sem nú er haldið í Reykjavík. Við forvitnuðumst sérstaklega um borgarskipulag út frá femínískri landfræði og þá staðhæfingu að sveitir heimsins séu að fara í eyði. Til okkar komu Anna Karlsdóttir og Magnfríður Birnu Júlíusdóttir, en þær eru dósent og lektor í mannvistarlandfræði.
Nýtt deiliskipulag vegna Sæbrautarstokks hefur verið kynnt. Samkvæmt því er heimilt að rífa húsið við Dugguvog 42 – en á því húsi er stærðarinnar listaverk eftir Gerði Helgadóttur, einn merkasta listamann Íslands. Þessu mótmælir Brynja Sveinsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns, harðlega. Hún ræddi málið við okkur.
Tónlist:
Kim Larsen - Om lidt.
Helgi Björns og reiðmenn vindanna - Ríðum sem fjandinn.
Simon and Garfunkel - America.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.