
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Endurnýjanlegir orkugjafar tóku fram úr kolum sem leiðandi orkugjafi heimsins á fyrri hluta þessa árs, í fyrsta sinn. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn. En ríki heimsins standa sig misvel. Hildigunnur Thorsteinsson, veðurstofustjóri og verkfræðingur, þekkir þetta vel og hún ræddi við okkur.
Við röbbuðum um gull í þættinum í gær - verð á gulli er óvenju hátt - og við héldum áfram að fjalla um gull, í dag rifjuðum við upp gullfundinn í Vatnsmýri í Reykjavík árið 1905. Um tíma var talið að “gullöld Íslendinga” væri að hefjast. Það reyndist rangt.
Við slógum botninn í þáttinn í dag með umfjöllun um sígilda tónlist. Magnús Lyngdal var með okkur og að þessu sinni sagði hann okkur frá hvernig hann hlustar á tónlist og valdi fyrir nokkur uppáhalds númer að heyra brot úr.
Tónlist:
Björgvin Halldórsson - Skýið.
Leonard Cohen - Hey that's no way to say goodbye.
Valur og Regnúlpurnar - Verði þinn vilji.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.