
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Kosið verður í Ungverjalandi á sunnudag. Kannanir benda til að valdatíð Orbans forsætisráðherra gæti verið á enda. Um kosningarnar, stjórnmálin í Ungverjalandi og Orban var fjallað í Heimsglugganum. Bogi Ágústsson ræddi við Gunnstein Ólafsson tónskáld sem lærði í Ungverjalandi á sínum tíma og þekkir vel til mála í landinu.
Vopnahlé við Persaflóa virðist í besta falli mjög brothætt, árásir Ísraela á Líbanon í gær hafa orðið til þess írönsk stjórnvöld segjast ekki munu opna umferð um Hormuz sund. Þar um fer fimmtungur olíu heimsins – en þannig hefur það auðvitað ekki verið síðustu vikur – og vegna þess ríkir olíukreppa. Óðinn Melsteð lektor í sagnfræði við Maastrict háskóla í Hollandi þekkir slíkar kreppur og ræddi við okkur.
Svo var fjallað um ljóðlistina. Hún er í brennidepli í Reykjanesbæ í dag og næstu daga; ljóða- og listahátíðin Skáldasuð á Suðurnesjum er að hefjast. Gunnhildur Þórðardóttir ljóðskáld og skipuleggjandi sagði frá og fór með nokkur ljóð.
Tónlist:
Ólöf Arnalds - Vorkoma.
Hljómar - Er hann birtist.
Flowers - Glugginn.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.