
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, spjallaði meðal annars um efnahagsleg áhrif jarðhræringanna á Reykjanesskaga - þau eru talsverð - og um Marel, líkt og síðustu vikur.
Við heyrðum líka af íbúum Árneshrepps sem eru orðnir langeygir eftir samgöngubótum. Vegir eru þar gamlir og lúnir og áformum um framkvæmdir sífellt frestað. Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti í Djúpavík ræddi um samgöngumálin.
Og svo var Arthúr Björgvin Bollason með okkur. Í Berlínarspjalli í dag ræddum við um hremmingar þýsku ríkisstjórnarinnar; tiltekin fjárútlát á þeim bæ voru dæmd ólögleg í hæstarétti á dögunum. Fyrirhuguð brúargerð í Rínardalnum er líka á dagskrá og undurfagur þýskur kórsöngur.
Tónlist:
Jones, Norah - Wake me up.
Sigríður Thorlacius - Englar í heimsókn.
Machito and his Afro Cubans, Machito - Novio mio.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.