Vestfirðir, börn, bækur og sígild tónlist
Við ræddum við Gylfa Ólafsson, bæjarstjóra í Ísafjarðarbæ. Gylfa líst ekkert sérstaklega vel á tillögur að breytingum á skiptingu þingsæta. Hann segir að hafa verði í huga að stjórnkerfið…
Hafliði Sævarsson ræddi um ástand mála á Kúbu en búist er við einhvers konar inngripum af hálfu Bandaríkjamanna þar. Hann sagði m.a. frá ferðalagi um Kúbu endilanga fyrir fáeinum vikum.
Þórhildur Ólafsdóttir flutti pistil frá Kampala í Úganda.
Rætt var um íslenska myndlist vítt og breitt við Cecilie Gaihede, forstöðumann Myndlistarmiðstöðvar. Tilefnið var afhending Íslensku myndlistarverðlaunanna í kvöld.
Tónlist:
Chan chan - Buena Vista Social Club,
El cuarto de Tula - Buena Vista Social Club,
Títómas - Tómas R. Einarsson,
Þínir löngu grönnu fingur - Bubbi Morthens.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.