
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Við héldum áfram að fjalla um þætti úr sögu Bandaríkjanna, í tilefni af 250 ára afmælinu eftir rúma viku. Lilja Hjartardóttir stjórnmálafræðingur hefur rannsakað sögu kynþátta og afleiðingar þrælahalds og ræddi brot úr þeirri miklu sögu.
Maður var nefndur Naddoður og var Ásvaldsson. Hann kom fyrstur manna til Íslands - segja Austfirðingar, hann kom á land á Austfjörðum. Minnisvarði um Naddoð verður afhjúpaður á Fáskrúðsfirði. Sigurjón Bjarnason, formaður Sögufélags Austurlands, sagði okkur meira um þennan mann og ferðir hans og landnám.
Svo var það sígilda tónlistin. Magnús Lyngdal sagði frá stórmerkilegu tónverki sem rússneskt tónskáld samdi í minningu vinar síns; listmálara nokkurs. Tónskáldið lýsir málverkum málarans í tónum. Svítan Myndir af sýningu var umfjöllunarefni dagsins.
Tónlist:
Danshljómsveit Bjarna Böðvarssonar - Ræll.
Stefán Hilmarsson, Sálin hans Jóns míns - Þú fullkomnar mig.
Svavar Knútur Kristinsson, Kristjana Stefánsdóttir - Undir birkitré.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.