Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Mannúðaraðstoð, dönsk málefni og vöxtum haldið óbreyttum

Gísli Rafn Ólafsson framkvæmdastjóri Rauða krossins var fyrsti gestur þáttarins. Í gær var alþjóðlegi mannúðardagurinn, þar sem vakin er athygli á störfum hjálparstarfsmanna og hvatt til aukinnar mannúðar. Aldrei hefur verið hættulegra að sinna hjálparstörfum, yfir 380 voru drepin við störf í fyrra.

Borgþór Arngrímsson sagði okkur tíðindi frá Danmörku. Aukin viðvera hersins á Grænlandi, sveitarstjórnarkosningar framundan og umdeild stytta voru meðal umræðuefna.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, brást við þeim tíðindum og ræddi um verðbólgu og efnahagsástandið.

Tónlist:

Aretha Franklin - I wonder.

Hjálmar - Leiðin okkar allra.

Anna Sóley - I Just Smile.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,