Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Staða barna, Evrópumál og Lína langsokkur

Heimsmyndin sem blasir við okkur ætti að vera bönnuð börnum, en það er ekki hægt. Þetta segir framkvæmdastjóri UNICEF, barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna hér á landi. Við ræddum um stöðu barna á Gaza og víða um heim við Steinunni Jakobsdóttur, kynningarstjóra UNICEF hér á landi.

Björn Malmquist sagði okkur ýmsar fréttir frá Brussel, og ræddi við Ástu Valdimarsdóttur, ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu, um viðræður um aðgang EES ríkjanna að áætlun Evrópusambandsins í viðbrögðum við heilbrigðisvá eða neyðarástandi.

Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um Línu langsokk, en 80 ára afmæli þessarar þekktu skáldsagnapersónu var fagnað í síðustu viku. Við heyrðum viðtal við Sigþrúði Gunnarsdóttur bókmenntafræðing frá því fyrir fimm árum um Línu, áhrif hennar og vinsældir, og um höfundinn Astrid Lindgren.

Tónlist:

Hjálmar - Morgunóður.

Mikael Máni Ásmundsson - What Once Was.

Jón Jónsson. - Tímavél.

Hanna Valdís Guðmundsdóttir - Lína Langsokkur.

Miles Davis og fleiri - Someday my prince will come.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,