
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Bogi Ágústsson var með okkur, á dagskrá Heimsgluggans í dag voru tvö mál: Ný dönsk ríkisstjórn og reiðin í Bretlandi vegna morðsins á Henry Nowak.
Á seinni tímanum fjölluðum við um stjórnmál, bæði nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar og alþingiskosningar á landshöfðingjatímabilinu.
Við slógum á þráðinn til Ómars Gunnarsson á Kópaskeri sem fór fyrir Óskalistanum í Norðurþingi og er kominn í meirihluta í sveitarstjórn.
Hrafnkell Lárusson sagnfræðingur kom svo til okkar og ræddi gömlu kosningarnar: Vissuði að þá kaus fólk í heyranda hljóði og í skýrslum er tilgreint hver kaus hvern. Hægt er að nálgast upplýsingarnar sem Hrafnkell ræddi um inni á vefnum heimildir.is.
Tónlist:
Kristinn Hallsson - Í dag skein sól.
Pálmi J. Sigurhjartarson - Höldum heim.
Pálmi J. Sigurhjartarson - She.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.