
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fjallað var um stjórnmálin og stöðu ríkisstjórnarinnar nú þegar hyllir undir þingfrestun. Gestir voru Drífa Snædal, talskona Stígamóta, og Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins.
Á morgun hefst sýningin Átthagamálverkið á Kjarvalsstöðum. Sýnd eru 100 málverk eftir 100 málara héðan og þaðan af landinu. Markús Þór Andrésson sýningarstjóri sagði frá.
Magnús Lyngdal Magnússon fjallaði um sígilda tónlist eins og síðustu föstudaga. Að þessu sinni lék hann brot eða kafla úr verkum sem flestir þekkja en vita ekki endilega eftir hvern eða um upprunann.
Tónlist:
At Seventeen - Ian Janis,
Sönn ást - Björgvin Halldórsson,
Austurstræti - Stórsveit Reykjavíkur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.